Ársfjórðungsbloggið

Já, löngum hefur bloggið á hakkanum setið en aldrei lengur en nú. En nóg hefur verið að gerast í leik og starfi. Við Hrund erum flutt í Kópavoginn enda vesturbær rvk bara útkrotað rokrassgat. Staðsetningin er ansi góð fyrir mig þar sem Valka er bara spölkorn frá. Nóg hefur verið að gera í vinnunni og bendi ég öllum á að skoða afar spennandi  fréttabréf  sem er nýkomið út.  Annars er íbúðin öllu stærri en sú sem við vorum í enda ætlar Krummi litli að búa hjá okkur á næstkomandi vetri þegar snáðinn heldur á vit nýrra ævintýra í háskólanum við kringluna. 

En að öllu rugli gleymdu þá er aðalfréttin sú að kallinn er bara búinn að panta miða á hinn raunverulega úrslitaleik meistaradeildarinnar á milli Man Utd - Barcelona þann 29. apríl (tæknilega undanúrslit en Lpool og Chelsea verða engin fyrirstaða). Verð fyrst í london yfir nk. helgi og vantar mig sárlega miða á Stamford Bridge á laugardaginn þar sem ManU verður í heimsókn en þeir miðar seljast á svona rúmlega 50 kúlur á netinu. Verð bara að setja upp söfnunarreikning til að geta fullkomnað þetta ferðalag.   

 


Kallinn bara útskrifaður

Útskrift 2008 Það hafðist að útskrifast sem maskiningeniør eða véltæknifræðingur á okkar ylhýra. Vörnin á lokaverkefninu tókst bara ágætlega upp og er ég bara allsáttur með hvernig til tókst. Það er a.m.k. ágætt að geta hætt að ferðast til Odense á nokkurra mánaða fresti og ekki á mar eftir að sakna hjólreiða og kantínumatsins á næstunni, þó að það hafi verið hálf skrýtið að segja skilið við skólann.

Eftir að prófi lauk koma Hrund og Binna (Orra) út og notuðum við tækifærið og kíktum á búðirnar á Strikinu og var það afslappandi og yndislegt að vanda og hinar stundirnar eyddi mar bara í marineringu yfir handbolta sem var líka fínt ef Ísland var ekki að spila.

Annars er maður núna bara alkominn heim í skítakuldann og vosbúðina og byrjaður að vinna. 

 

 

Ég og Orri kampakátir með skírteinin en Orri var að ég held að klára doktorinn í hársnyrtingu

Útskrift 2008

 

 

 

 

 

 

 

 

Ég og Hrund í kantinen eftir athöfnina. 


Gleðileg jól

Jæja, þá er búið að skila lokaverkefninu og maður er bara kominn heim á hornið. Seinustu dagarnir í verkefninu tóku vel á og skilaði ég 75 mín áður en lestin fór á flugvöllinn. Núna er bara hægt að fara hlakka til útskriftar í lok janúar.

 Annars vil ég senda öllum gleðilega jólakveðju.


For søren...

Nú er langt liðið á seinustu önnina mína í skólanum og lokaverkefnið gengur allbærilega. Tæplega 50 síður á hinni ylhýru dönsku klárar en mikill fjöldi eftir og fjórar vikur í skil. Ég hef unnið verkefnið hérna í Völku og hefur það verið fínt enda getað fengið hellings vinnu með til að eiga fyrir salti í grautinn. Annars snýst verkefnið um hagræðingu í Humarvinnslunni í Skinney-Þinganes og gengur það bara vel. Líklega verða bara tveir-þrír sofandi gaurar í eftirliti í vinnslunni á nk. vertíð. Annars  verður maður í DK stóran hluta af des. og jan. og áætluð útskrift er 26. jan. sem ég get ekki beðið. Eftir það fer ég beint í Völku enda búinn að ráða mig þar, hvort sem ég útskrifast eður ei. Að endingu vil ég senda áskorun til íslenskra stjórnvalda um að opna dunkin donuts í Smáralind. USA 2007

Hamingjuóskir

Ég vil óska lögfræðingi Skipulagsstofnunnar (eða National Planning Agency) til lukku með gráðuna. Veislan var góð og ætlaði aldrei að enda. Býst við miklu af kallinum á opinberum vettfangi í framtíðinni en um leið má hann ekki búast við að vinna svo mikið sem eina lotu í skvassinu.  

Skálafells-draugurinn bara orðinn virðulegur lögspekingur


Thomas Beck spilar með Blau-Weiß Feldkirch...

Ekki skrýtið að okkar menn geti ekki haft hemil á mönnum sem koma frá slíkum stórliðum. Nei, annars er það spurning að fara taka til þarna og ekki henda bara Eyjólfi heldur sparka líka út mönnum sem virðast bara hafa áskrift að liðinu þrátt fyrir að vera ekki að spila mikið með sínum félagsliðum. 
mbl.is Ljótur skellur Íslands í Liechtenstein
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Kominn heim frá Ameríku...fyrir löngu

Það var nú planið að birta ferðasöguna fyrr en núna kemur hún. Fleiri myndir sjást hér.  

Já, Ameríkuferðin var fín svo ekki sé meira sagt. Byrjuðum á mega túristaferð um New York þar sem var farið í Empire state, central park, siglingar, rútuferðir, vaxmyndasafn, times squire, beoncy tónleika, rocafeller center, bronx zoo, ground zero (ofmetið), osfrv. Það var enginn smá hiti í borginni og ennþá heitara niðri í subway sem var okkar fararskjóti á manhattan. Hótelið var fínt miðað við verð og get ég mælt með því fyrir hagsýna ferðalanga.  

Eftir 5 daga í NY tók við vika á sundlaugarbakka í Dóminíska Lýðveldinu. Það var einkar gott eftir þrammið í NY. Þar vorum við á all inclusive (frír matur og drykkur) hóteli sem var einkar hentugt. Reyndar týndust töskurnar okkar á leiðinni til Dóm en þar skiluðu sér eftir 2 daga aukaferðalag. Hitinn var líka mikill í karabíska en einstaka ofurskúr og ský gerðu manni lífið bærilegt ásamt því að stutt var ávallt í sundlaug eða sjó.

Frá Dóm var haldið til maimi þar sem við pikkuðum upp bílaleigubíl og keyrðum upp til Orlando. Þar var stoppað í einn dag og farið í Seaworld. Þar sáum við fiska og spendýr gera allkyns kúnstir sem mér datt ekki í hug að þessi kvikindi gætu gert. Var það afar hressandi og vorum við skötuhjúin allsátt við þá ferð okkar. 

Eftir það var tekið road trip til Montgomery, Alabama þar sem við heimsóttum knatthetjuna Tinnu og allt hennar fylgdarlið. 

Að endingu flugum við til Dísu systir í Bedford, New Hampshire en þar býr hún með sínu gengi.

USA 2007


Á ferð vestur um haf...

Jæja, þá fer að koma að hinni miklu reisu vestur til Ameríku og get ég varla beðið úr spenningi. Að því tilefni ætla ég að framleggja ferðaplönin bara svona til að auka á öfund og armæðu þeirra sem halda sig bara heima á Ísalandi í sumar. Ég og Hrund leggjum í hann á morgun og fljúgum beint til New York þar sem við munum eyða verslunarmannahelginni þetta árið. Þar sem hótelin í NYC eru næstum jafn dýr og Eddu hótelið í Nesjahverfi munum við þar dvelja í eins og hálfsstjörnu hóteli sem heitir Alexander. Þar deilum við salernum með öðrum gestum og vonumst til að loftkælingin virki enda heitt í borginni þessa daganna.  Annars er stefnan bara að leika túrista dauðans og reyna kíkja á allt það merkilegasta. T.d. erum við búin að kaupa miða á Beoncy Knowles tónleika í Madison Square Garden en hún er einmitt minn uppáhalds tónlistarmaður. Eftir NY verður síðan haldið niður í Karabíska hafið þar sem planið er að sóla sig í Dóminíska lýðveldinu í viku. Þar verðum við á heldur skárra 3* hóteli sem kostar ca. 11.000 ísl. kr. fyrir vikuna pr. haus. Eftir vikuna í sólinni verður síðan tekið road trip frá Miami til Alabama. Við verðum ekkert í neinu stressi og eigum líklega eftir að stoppa 2-3 daga í Orlando á leiðinni upp Flórída-skagann. Í Montgomery, Alabama á svo að heimsækja Tinnu, vinkonu Hrundar, og dvelja þar í nokkra daga.  Að endingu verður flogið til Boston Dísa systir og co. verða heimsótt. Já, ekki smá reisa það.

-je 

 

 

   


Þá lágu danir í því

Eymingja danir. Allt leit út fyrir glæstan sigur kjúklingsins en þá skeit hann bara upp á bak. Get ekki sagt annað að ég sé sjálfur smá sár enda lá ég yfir Tour de France í fyrrasumar og veit ég að baunarnir voru orðnir vel spenntir enda áhuginn þar svakalegur. Þetta er líka ekki einmitt það sem hjólasportið vantaði, fleiri skandala. Öll keppnin í fyrra var plöguð af dópmálum. Fyrir keppnina voru margir sigurstranglegustu keppendurnir reknir og svo var sigurvegarinn tekinn nokkra daga eftir glæstan sigur. Þá héldu margir að botninum væri náð fyrir sportið en það virðist greinilega allt vera á niðurleið ennþá. 
mbl.is Michael Rasmussen vikið úr Tour de France
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Næsta síða »

Um bloggið

Jónsa blogg

Höfundur

Jónsi
Jónsi
Er 26 ára hornfirðingur sem býr í Vesturbænum með kærustunni. Vinnur hjá Völku og klárar brátt nám í véltæknifræði.

Tónlistarspilari

Jan. 2012
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30 31        

Bloggvinir

Nýjustu myndir

  • Útskrift 2008
  • Udskrift Jon 08 007
  • USA 2007
  • USA 2007
  • IMG_6479 (Large)

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (28.1.): 0
  • Sl. sólarhring: 0
  • Sl. viku: 0
  • Frá upphafi: 4820

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 0
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband